website statistics

Um Markmál

Vantar þig aðstoð við þýðingar, textaskrif eða uppsetningu leiðbeiningabæklinga?

Markmál er ný og öflug þjónusta sem býður upp á þýðingar, textaráðgjöf og uppsetningu handbóka og leiðbeiningarbæklinga. Við önnumst þýðingar og textaskrif á íslensku, þýsku og ensku.

Starfslið Markmáls samanstendur af háskólamenntuðum þýðendum með reynslu og þekkingu á tæknimáli. Hjá okkur starfar jafnframt prentsmiður með áralanga reynslu í uppsetningu og frágangi á alls kyns prentmiðlum. Auk fastra starfsmanna er Markmál í tengslum við stóran hóp lausráðinna þýðenda og textagerðarmanna með víðtæka reynslu.

Við tökum að okkur hugbúnaðarþýðingar, vélbúnaðarþýðingar, leiðbeiningar fyrir stærri og smærri vélar, notendahjálp og margt fleira. Við sjáum um uppsetningu handbóka og leiðbeiningabæklinga sem hægt er að birta hvort sem er sem bók, margmiðlunardisk eða á netinu.

Við ábyrgjumst faglega og nákvæma meðhöndlun á tæknilegum textum af ýmsum toga á sanngjörnu verði. Starfsfólk okkar hefur breiða þekkingu á atvinnulífinu og við kappkostum að veita viðskiptavinum okkar áreiðanlega og hraða þjónustu.

Hafðu samband við okkur og við munum svara þér með sanngjörnu tilboði hið fyrsta

Markmál | Stórhöfða 15, 110 RVK | Pósthólf 12066, 132 RVK | Sími: 577-5003 & 660-5003 | markmal@markmal.is